Thursday, August 10, 2006
Monday, August 07, 2006
Flarbjörn fær sér flugmiða
Flarbjörn ákvað að breyta fluginu. Fyrst hringdi hann til Kef. Ekkert mál. Flugið flutt. Takið eftir þessu. Hann hringdi í Icelandair og það var ekkert mál. Þá hringdi hann í NWA. Eftir 15 mínútna bið fékk hann samband við agent sem sagði honum að miðinn hefði verið pantaður gegnum Air France. Hann yrði að hringja þangað. Sem hann og gerði. Þar fékk hann að heyra "Making plans for Nigel" með Nouvelle Vague í sambaútsetningu í 30 mínútur meðan the cheeseeating surrender monkeys voru að fá sér croissant og bægja frá sér flugunum. Þá fékk hann samband og var sagt að hann gæti ekki fengið flug. Þannig að hann hringdi aftur í NWA og talaði í 20 mínútur við huggulega tölvu. Sú gat enganveginn skilið hvenær hann vildi fara.
"What is your departure date?"
"August eighth" sagði Flarbjörn.
"April 12th" sagði tölvan. "Is that correct?"
"No!", hvíslaði Flarbjörn.
"What is your departure date?"
"The eighth of August."
"September fifth", sagði tölvan.
"No!"
Svo kom Nina agent á línuna og eftir 7 mínútna samtal kom í ljós að hann gat ekki notað kortið gegnum síma. Þá rauk hann skyndilega út og kom svo aftur og sagðist hafa reykt sjö sígarettur. Svona var sá aumingjaskapur. Á meðan bókaði J.M hann eins og ekkert væri. Furðulegt helvíti.

Allir að springa
Kvöldmaturinn var tekinn á Mortons sem er steikhús steikhúsanna. Forréttirnir hefðu getað fætt 30 manns og það þurfti fjóra til að bera Porterhousesteikurnar á borðið. Svo kom súkkulaðikakan og súkkulaðisouffleið að góðum notum.
Þetta var svo rosaleg súkkulaðikaka að Flarbjörn ákvað að framlengja dvölina um einn dag.
Þegar við vorum að ganga að 7-11 til að kaupa okkur vatn gekk maður að okkur og sagði: "Hey, I saw you at Morton's just earlier". Við veifuðum og þutum í burtu til að hann segði okkur ekki ævisögu sína eins og Könum er víst gjarnt að gera þegar þeir hitta fólk sem hefur ekki heyrt hana.

Want fries with that hair?
Léttur fílingur á Lolla í dag. Fiðlu-og flautmeistarinn Andrew Bird, Shins, Reverend Horton Heat og Wilco. Sú síðastnefnda var ástæðan fyrir því að JM fékk þá brilliant hugmynd að fara hingað. Þessar hljómsveitir voru allar magnaðar fyrir utan að það var skelfilegt sánd á Shins.

Þetta er hin magnaða Reverend Horton Heat. Henni er kannski best lýst sem Langa Sela á spítti. Eða eins og J.M sagði: "Eina rokkabillíhljómsveitin sem heldur að hún sé heavy metal hljómsveit."
Trommarinn lítur út eins og launsonur Iggy Pop og John Taylor úr Queen, söngvarinn er líklega launsonur Steingríms Hermanns og bassaleikarinn er eins og allir aðrir rokkabíllibassaleikarar sem til hafa verið.
"Steingrímur" þakkaði áhorfendum fyrir að láta þeim líða eins og rokkstjörnum. Þeir væru ófágaðir sveitamenn, borðuðu á trukkarastöðum og þvæðu sér um hárið á salerninu á Burger King. Þeir væru hreint ekki vanir svona fínheitum.

Komodo
Eitt skrautlegt sem við gleymdum að minnast á hvað Death by Chocolate máltíðina varðar. Okkur var vísað til sætis og móttökustjórinn sagði: "Your server will be Eric. He was fired tonight but he's a professional so I'm sure he will be on top of things."
Eric greyið stóð sig ágætlega en var dálítið dasaður að sjá. Gott hjá honum að klára vaktina en hálfleiðinlegt að öllum borðunum hafi verið tilkynnt að hann hafi verið rekinn. Kannski hann hafi fengið meira þjórfé en ella.

Sunday, August 06, 2006
Sunday
Starbucks er æði. Í dag eru Andrew Bird, Shins, Reverend Horton Heath og Wilco helst á dagskrá. Kannski RHCP.
No Chelsea, no cry
Við komumst að því á laugardeginum að Chelsea væri að spila í bænum og fórum niður í lobbý að athuga hvort það væru til miðar. Í upplýsingunum var eitt svaðalegasta strandljón sem sést hefur: Með skyrtuna opna niður að nafla og bling bling flækt í bringuhárunum. Hann athugaði það fyrir okkur í tölvunni en fyrst þurfti hann að taka sérstakt "athuga í tölvunni pós" með því að teygja vinstri handlegginn og halda um hornið á skáp sem var þarna og pikka síðan með hægri. En það var ekkert laust. Sem var ágætt því Chelsea tapaði eitt núll.
Lovely Lips

Flaming Lips fá alveg sérfærslu. Þeir fá búningaverðlaunin og gleðiverðlaunin.
Fyrst mættu rótarar í Supermanbúningum á sviðið, svo komu 20 jólasveinar og 20 geimverukonur. Wayne söngvari lét setja sig í kúlu sem var blásin upp og svo velti hann sér yfir áhorfendaskarann í henni. Þá voru 50 risablöðrur sendar út. Söngvarinn skaut af og til partístrimlum úr rörabyssu. Síðan var samsöngur allan tímann. "Two scientists were racing", "Yoshimi", "She Don't Use Jelly", "Do you realize"... beautiful stemmning í 30 stiga hita.
Margir reiðir en sumir bara léttpirraðir og enn aðrir í frekar góðu skapi
Nada Surf var fyrst á dagskrá. Fínt prógramm og rokk út í gegn. Söngvarinn átti afmæli og bassaleikarinn var orðinn aðeins of gamall til að vera með dreadlocks og strípur.
Næstir á Bud light sviðið var "Brothers of Bobby Fischer Band", Built to Spill öðru nafni. Það voru reiðir miðaldra karlmenn sem litu allir út eins og Bobby. Þeir voru helvíti fínir og fengu af og til kommúnistaköst á sviðinu. "Bud Light is Not Your Friend", "Corporation Keister" og fleiri upphrópanir. Af þessu tilefni sömdu Knastásar lagið: "Ég á mér hobbý, það er að sitja niðri í lobbý og athuga hvort ég sjái Fischer." Það er E A E A E D
Annars voru lögin "Mitt uppáhaldslag er Lucky Nömmer og ég dái Joe Strömmer en samt er ég á bömmer því ég á ekki Hömmer og hjólhýsi" (EAEAED) og "Oft var nauðsyn en nú er þörf, ég ætla að hlusta á Nada Sörf" (EAEAED) samin.
Við röltum yfir að næsta sviði þar sem Calexico tók lagið. Ísak brá sér á Gnarls Barkley á meðan en við J. M. steinsofnuðum í grasinu við ljúfan undirleik Calex.
Við mættum frekar beyglaðir á Sonic Youth sem var frábær eins og endranær. Thurston Moore virðist hafa ætlað að selja djöflinum sál sín fyrir tónlistarhæfileika en óvart skrifað undir samning um eilífa æsku (sem var kannski ekkert sérstakur díll). Hann hefur litið eins út í 25 ár.

Breakfast at Benningans

Laugardagurinn byrjaði og endaði á Benningans. J. M og Ísak fengu sér risafarma af eggjum og ristuðu en Flarbjörn stökk á steikina. Svo pantaði hann Death by Chocolate en var til allrar hamingju tilkynnt að ekki væri hægt að bjarga því. Þannig að hann fór út harðákveðinn í að áður en dagur væri að kvöldi kominn væri DBC í görnunum á honum. Og það tókst á Benningans um miðnætti: Þá var reyndar tekið kombó: DBC og Creme Brulee Cheesecake. Risamofoeftirréttir.
Saturday, August 05, 2006
Wine, Ween og Violent

J. M og Ísak litu á Iron and Wine og fannst mikil snilld þrátt fyrir að Iron sjálfur hafi hvorki klifið stæður né misþyrmt trommusettinu. Á meðan kannaði Flarbjörn skýjakljúfablæti sitt frekar.
Hann mætti in time til að sjá Raconteurs sem voru einhvernveginn la la. Þannig að Knastásar fluttu sig að Violent Femmes sviðinu og lágu þar í grasinu þar til VF mættu; eina hljómsveitin á svæðinu sem hafi spilað með fyrrverandi sambýlismanni Flarbjarnar. VF voru lausir úr viðjum hins viðbjóðslega Broadway og voru frábærir. Hvílík feelgood stuðhljómsveit. Þeir hafa lifað í 25 ár á sömu plötunni en hvílík plata. Allir sungu með Blister in the Sun, Add it up og öllum þessum 22-lögum. Það var ekki laust við að örlítil hasslykt fyndist.
Hún var ekki örlítil þegar að Ween kom. Þótt þetta væru útitónleikar var andrúmsloftið fullt af PCH. Snertivíman var gríðarleg og Ween voru magnaðir. Þeir tóku meðal annars "Mister, please help my pony", "Pissing up a rope" og "Waving my dick in the wind".
Friday, August 04, 2006
Á höttunum skuluð þér þekkja þá
Næst litum við á Cursive. Þeir voru ágætir. En þá hófst aðalfjörið. Hljómsveitin Eels mætti á svið. Síðast þegar ég hlustaði á þá hljómsveit (sem er meira eða minna einn maður) var hún þunglynd píanó-gítarsveit. En það var ljóst að eitthvað hafði breyst þegar söngvarinn mætti með gamaldags flugmannskaskeiti og logsuðugleraugu, trommarinn var með appelsínugulan plasthjálm og skegg niður á maga og hinn gítarleikarinn var nákvæmlega eins og Fidel (heitinn?). Að auki var á sviðinu öryggisvörður (í bol merktur security) sem var með Matth. Joch. barta og fór allt í einu að dansa og koma með sérkennilegar athugasemdir milli laga sem voru ekki í neinum tengslum við það sem fram fór. Hljómsveitin rokkaði eins og eitthvað sem serðir formæður sínar og endaði á að taka That's Life sem Sinatra gerði frægt.
Snillingar.
Snillingar.
Tina Weymouth var babe

Við lásum í Time Out að flest celebritiin væru á Hard rock Hotel. Við urðum mjög spenntir og það fór fiðringur um mannskapinn þar til við áttuðum okkur á að þessar hljómsveitir eru allar svo ófrægar að eini maðurinn sem við vitum hvernig lítur út er Anthony Kiedis úr RHCP. J. M. sá samt Subways niðri í lobbíi en vissi eingöngu að þetta væru Subways því það stóð Subways á töskunum þeirra.
Við byrjuðum á að líta á tónleika með þeim. Það var klukkan tólf á hádegi en Bretinn lét það ekki á sig fá heldur tók öll Rockstar-elementin; kleif súlurnar, henti sér út í áhorfendaskarann og hélt langa og ruglingslega ræðu um rokkleysi í útvarpinu. Það sem bjargaði sveitinni var Kim Deal effektinn- bassaleikarinn var kona í stuttu pilsi.
Knastásar á Alzheimers
Dagurinn hófst mjög mjög snemma enda kerfið orðið klikk. Við vorum komnir út um áttaleytið og borðuðum á Oldtimers. Það var trukkastaður af gamla skólanum og J. M. Knastás varð að orði að Kinky Friedman hlyti að hafa borðað þarna. Beikon, smjörsteikt franskbrauð með kanil, pönnukökur með sírópi. Flarbjörn pantaði sér "eggs sunny side up" og kumraði síðan í honum af ánægju allan daginn yfir að hafa náð að segja þetta. Síðar í ferðinni sagði hann "eggs over easy" og þótti það ekki vont heldur.
Early Bird Special
Nú er morgunn... hálfeitt á Íslandi en hálfátta í Kakó. Búið að fá sér göngutúr í stuttbuxunum út á Starbucks í sólinni og kaupa einn medium latte. Við það að bugast undan þyngd hans. Næst er að fara niður í Grant Park og fá útihátíðararmband og leita uppi morgunverðarstað.
Mínus 50
Sáum Minneapolis út um gluggann á flugstöðinni þar sem við borðuðum á Big Mouth Burger og hlýddum á intimate en einhliða gemsasímtöl fólksins á næstu borðum; Bandaríkjamenn hafa greinilega ekki áhyggjur af því að maður þekki frænku þeirra.
Þeir hafa ekkert að fela. Á leiðinni frá Min til Chi sat Flarbjörn við hliðina á tveimur middle-management strákum sem voru að flytja út í úthverfin í leit að bakgörðum til að stofna all-american fjölskyldur. F. K. spurði ráða um leigubíla á O'Hare og það spunnust samræður út frá því. Í ljós kom að söngvarinn í Cake hataði annan þeirra frá fornri tíð. Verst að Cake er ekki að spila á Lollapalooza.
Leigubílstjórinn ákvað að taka detour því umferðin var svo mikil niður í bæ. Það var eins og í æsilegasta eltingaleik í bandarískri bíómynd. Skýjakljúfarnir blöstu upplýstir við í einum hnapp eins og fútúrískar dómkirkjur. Annað en þessi kofaþyrping sem við búum í.
Fengum herbergi sem var 50 fm minna en lofað var. Eftir kvörtun var lofað að flytja okkur í fyrramálið og gefa okkur verulegan afslátt sem við ætlum að eyða í einhvern ólifnað.

Svívirðingar óskast
Kvartað var yfir því að lesendur kæmust ekki að með svívirðingar; það hefur verið leiðrétt.
Thursday, August 03, 2006
Öll met slegin
... Record daily maximum rainfall set at Twin Cities...
a record rainfall of 2.69 inch(es) was set at Twin Cities today.
This breaks the old record of 2.39 set in 1956.
En það er 20 gráðu hiti þar og heiðskírt.
Chicago hinsvegar:
Now
Scattered rain showers continue to move through the region as of 635 am. As these showers continue to move through the area... brief heavy downpours along with occasional lightning will be possible. Ponding of water may also occur across area roads and Highways...a result of the continued rainfall that occurred throughout the evening and overnight hours. All drivers should exercise caution when traveling to work this morning.

Flarbjörn í fatnaðarkrísu
Það var gert ráð fyrir sól alla leið frá Kef til Kakó. Nú er rigning alla leið frá Kef til Kakó. Þá verður að setja niður föt fyrir tvo möguleika; rigningu annarsvegar og þurrvirði hinsvegar. Þetta er skelfilegt. Flarbjörn (moi því finnst mér ekkert tilgerðarlegt að skrifa í þriðju) ákvað samt að taka léttleikann á það og fara í safarífötunum í von um að það væri komin sól og blíðviðri i borg vindanna.
Wednesday, August 02, 2006
Innrásin frá Júpíter
Now!
Showers and thunderstorms continue to develop across northern Illinois. At 745 PM...the bulk of the showers stretched along a line from DeKalb...to Elgin...to south of Waukegan Illinois... with an additional band of showers moving across the southwest suburbs and downtown Chicago. These showers and thunderstorms are capable of producing wind gusts up to 40 mph...small hail...and extended periods of heavy rainfall which may result in some ponding of water along roadways and minor street flooding in downtown Chicago. Meanwhile...additional storms over Putnam County will move into the LaSalle and Ottawa regions by 800 PM. Showers are expected to increase in coverage across the LaSalle...DeKalb...Kendall...and Kane County regions through 830 PM.
Útsending á Rockstar datt út vegna aftakaveðurs í Bandaríkjunum... einhver tengsl? Hvað verður um tc-kópíuna mína?

Borðræða um baðferð
Klukkan er 21:16 í Reykjavík. Hún er 4:18 pm í Chicago.
Það er 36.9 gráðu hiti í Chicago og 37 prósent raki. C'est hot.
Flarbjörn Knastás (moi) er að þýða síðasta þáttinn sem hann ætlar sér að klára fyrir ferðina. J. M. Knastás og Ísak Knastás voru að koma úr veiðiferð norður á landi.
Áætlaður brottfarartími er klukkan þrettán á morgun og flugtak klukkan 16:25.