Friday, August 04, 2006

Á höttunum skuluð þér þekkja þá

Næst litum við á Cursive. Þeir voru ágætir. En þá hófst aðalfjörið. Hljómsveitin Eels mætti á svið. Síðast þegar ég hlustaði á þá hljómsveit (sem er meira eða minna einn maður) var hún þunglynd píanó-gítarsveit. En það var ljóst að eitthvað hafði breyst þegar söngvarinn mætti með gamaldags flugmannskaskeiti og logsuðugleraugu, trommarinn var með appelsínugulan plasthjálm og skegg niður á maga og hinn gítarleikarinn var nákvæmlega eins og Fidel (heitinn?). Að auki var á sviðinu öryggisvörður (í bol merktur security) sem var með Matth. Joch. barta og fór allt í einu að dansa og koma með sérkennilegar athugasemdir milli laga sem voru ekki í neinum tengslum við það sem fram fór. Hljómsveitin rokkaði eins og eitthvað sem serðir formæður sínar og endaði á að taka That's Life sem Sinatra gerði frægt.

Snillingar.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home