Wine, Ween og Violent

J. M og Ísak litu á Iron and Wine og fannst mikil snilld þrátt fyrir að Iron sjálfur hafi hvorki klifið stæður né misþyrmt trommusettinu. Á meðan kannaði Flarbjörn skýjakljúfablæti sitt frekar.
Hann mætti in time til að sjá Raconteurs sem voru einhvernveginn la la. Þannig að Knastásar fluttu sig að Violent Femmes sviðinu og lágu þar í grasinu þar til VF mættu; eina hljómsveitin á svæðinu sem hafi spilað með fyrrverandi sambýlismanni Flarbjarnar. VF voru lausir úr viðjum hins viðbjóðslega Broadway og voru frábærir. Hvílík feelgood stuðhljómsveit. Þeir hafa lifað í 25 ár á sömu plötunni en hvílík plata. Allir sungu með Blister in the Sun, Add it up og öllum þessum 22-lögum. Það var ekki laust við að örlítil hasslykt fyndist.
Hún var ekki örlítil þegar að Ween kom. Þótt þetta væru útitónleikar var andrúmsloftið fullt af PCH. Snertivíman var gríðarleg og Ween voru magnaðir. Þeir tóku meðal annars "Mister, please help my pony", "Pissing up a rope" og "Waving my dick in the wind".

0 Comments:
Post a Comment
<< Home