Tina Weymouth var babe

Við lásum í Time Out að flest celebritiin væru á Hard rock Hotel. Við urðum mjög spenntir og það fór fiðringur um mannskapinn þar til við áttuðum okkur á að þessar hljómsveitir eru allar svo ófrægar að eini maðurinn sem við vitum hvernig lítur út er Anthony Kiedis úr RHCP. J. M. sá samt Subways niðri í lobbíi en vissi eingöngu að þetta væru Subways því það stóð Subways á töskunum þeirra.
Við byrjuðum á að líta á tónleika með þeim. Það var klukkan tólf á hádegi en Bretinn lét það ekki á sig fá heldur tók öll Rockstar-elementin; kleif súlurnar, henti sér út í áhorfendaskarann og hélt langa og ruglingslega ræðu um rokkleysi í útvarpinu. Það sem bjargaði sveitinni var Kim Deal effektinn- bassaleikarinn var kona í stuttu pilsi.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home