Flarbjörn fær sér flugmiða
Flarbjörn ákvað að breyta fluginu. Fyrst hringdi hann til Kef. Ekkert mál. Flugið flutt. Takið eftir þessu. Hann hringdi í Icelandair og það var ekkert mál. Þá hringdi hann í NWA. Eftir 15 mínútna bið fékk hann samband við agent sem sagði honum að miðinn hefði verið pantaður gegnum Air France. Hann yrði að hringja þangað. Sem hann og gerði. Þar fékk hann að heyra "Making plans for Nigel" með Nouvelle Vague í sambaútsetningu í 30 mínútur meðan the cheeseeating surrender monkeys voru að fá sér croissant og bægja frá sér flugunum. Þá fékk hann samband og var sagt að hann gæti ekki fengið flug. Þannig að hann hringdi aftur í NWA og talaði í 20 mínútur við huggulega tölvu. Sú gat enganveginn skilið hvenær hann vildi fara.
"What is your departure date?"
"August eighth" sagði Flarbjörn.
"April 12th" sagði tölvan. "Is that correct?"
"No!", hvíslaði Flarbjörn.
"What is your departure date?"
"The eighth of August."
"September fifth", sagði tölvan.
"No!"
Svo kom Nina agent á línuna og eftir 7 mínútna samtal kom í ljós að hann gat ekki notað kortið gegnum síma. Þá rauk hann skyndilega út og kom svo aftur og sagðist hafa reykt sjö sígarettur. Svona var sá aumingjaskapur. Á meðan bókaði J.M hann eins og ekkert væri. Furðulegt helvíti.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home