Knastásar á Alzheimers
Dagurinn hófst mjög mjög snemma enda kerfið orðið klikk. Við vorum komnir út um áttaleytið og borðuðum á Oldtimers. Það var trukkastaður af gamla skólanum og J. M. Knastás varð að orði að Kinky Friedman hlyti að hafa borðað þarna. Beikon, smjörsteikt franskbrauð með kanil, pönnukökur með sírópi. Flarbjörn pantaði sér "eggs sunny side up" og kumraði síðan í honum af ánægju allan daginn yfir að hafa náð að segja þetta. Síðar í ferðinni sagði hann "eggs over easy" og þótti það ekki vont heldur.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home