Friday, August 04, 2006

Mínus 50

Sáum Minneapolis út um gluggann á flugstöðinni þar sem við borðuðum á Big Mouth Burger og hlýddum á intimate en einhliða gemsasímtöl fólksins á næstu borðum; Bandaríkjamenn hafa greinilega ekki áhyggjur af því að maður þekki frænku þeirra.

Þeir hafa ekkert að fela. Á leiðinni frá Min til Chi sat Flarbjörn við hliðina á tveimur middle-management strákum sem voru að flytja út í úthverfin í leit að bakgörðum til að stofna all-american fjölskyldur. F. K. spurði ráða um leigubíla á O'Hare og það spunnust samræður út frá því. Í ljós kom að söngvarinn í Cake hataði annan þeirra frá fornri tíð. Verst að Cake er ekki að spila á Lollapalooza.

Leigubílstjórinn ákvað að taka detour því umferðin var svo mikil niður í bæ. Það var eins og í æsilegasta eltingaleik í bandarískri bíómynd. Skýjakljúfarnir blöstu upplýstir við í einum hnapp eins og fútúrískar dómkirkjur. Annað en þessi kofaþyrping sem við búum í.

Fengum herbergi sem var 50 fm minna en lofað var. Eftir kvörtun var lofað að flytja okkur í fyrramálið og gefa okkur verulegan afslátt sem við ætlum að eyða í einhvern ólifnað.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home