Margir reiðir en sumir bara léttpirraðir og enn aðrir í frekar góðu skapi
Nada Surf var fyrst á dagskrá. Fínt prógramm og rokk út í gegn. Söngvarinn átti afmæli og bassaleikarinn var orðinn aðeins of gamall til að vera með dreadlocks og strípur.
Næstir á Bud light sviðið var "Brothers of Bobby Fischer Band", Built to Spill öðru nafni. Það voru reiðir miðaldra karlmenn sem litu allir út eins og Bobby. Þeir voru helvíti fínir og fengu af og til kommúnistaköst á sviðinu. "Bud Light is Not Your Friend", "Corporation Keister" og fleiri upphrópanir. Af þessu tilefni sömdu Knastásar lagið: "Ég á mér hobbý, það er að sitja niðri í lobbý og athuga hvort ég sjái Fischer." Það er E A E A E D
Annars voru lögin "Mitt uppáhaldslag er Lucky Nömmer og ég dái Joe Strömmer en samt er ég á bömmer því ég á ekki Hömmer og hjólhýsi" (EAEAED) og "Oft var nauðsyn en nú er þörf, ég ætla að hlusta á Nada Sörf" (EAEAED) samin.
Við röltum yfir að næsta sviði þar sem Calexico tók lagið. Ísak brá sér á Gnarls Barkley á meðan en við J. M. steinsofnuðum í grasinu við ljúfan undirleik Calex.
Við mættum frekar beyglaðir á Sonic Youth sem var frábær eins og endranær. Thurston Moore virðist hafa ætlað að selja djöflinum sál sín fyrir tónlistarhæfileika en óvart skrifað undir samning um eilífa æsku (sem var kannski ekkert sérstakur díll). Hann hefur litið eins út í 25 ár.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home