Monday, August 07, 2006

Allir að springa

Kvöldmaturinn var tekinn á Mortons sem er steikhús steikhúsanna. Forréttirnir hefðu getað fætt 30 manns og það þurfti fjóra til að bera Porterhousesteikurnar á borðið. Svo kom súkkulaðikakan og súkkulaðisouffleið að góðum notum.

Þetta var svo rosaleg súkkulaðikaka að Flarbjörn ákvað að framlengja dvölina um einn dag.

Þegar við vorum að ganga að 7-11 til að kaupa okkur vatn gekk maður að okkur og sagði: "Hey, I saw you at Morton's just earlier". Við veifuðum og þutum í burtu til að hann segði okkur ekki ævisögu sína eins og Könum er víst gjarnt að gera þegar þeir hitta fólk sem hefur ekki heyrt hana.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home