Want fries with that hair?
Léttur fílingur á Lolla í dag. Fiðlu-og flautmeistarinn Andrew Bird, Shins, Reverend Horton Heat og Wilco. Sú síðastnefnda var ástæðan fyrir því að JM fékk þá brilliant hugmynd að fara hingað. Þessar hljómsveitir voru allar magnaðar fyrir utan að það var skelfilegt sánd á Shins.

Þetta er hin magnaða Reverend Horton Heat. Henni er kannski best lýst sem Langa Sela á spítti. Eða eins og J.M sagði: "Eina rokkabillíhljómsveitin sem heldur að hún sé heavy metal hljómsveit."
Trommarinn lítur út eins og launsonur Iggy Pop og John Taylor úr Queen, söngvarinn er líklega launsonur Steingríms Hermanns og bassaleikarinn er eins og allir aðrir rokkabíllibassaleikarar sem til hafa verið.
"Steingrímur" þakkaði áhorfendum fyrir að láta þeim líða eins og rokkstjörnum. Þeir væru ófágaðir sveitamenn, borðuðu á trukkarastöðum og þvæðu sér um hárið á salerninu á Burger King. Þeir væru hreint ekki vanir svona fínheitum.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home