No Chelsea, no cry
Við komumst að því á laugardeginum að Chelsea væri að spila í bænum og fórum niður í lobbý að athuga hvort það væru til miðar. Í upplýsingunum var eitt svaðalegasta strandljón sem sést hefur: Með skyrtuna opna niður að nafla og bling bling flækt í bringuhárunum. Hann athugaði það fyrir okkur í tölvunni en fyrst þurfti hann að taka sérstakt "athuga í tölvunni pós" með því að teygja vinstri handlegginn og halda um hornið á skáp sem var þarna og pikka síðan með hægri. En það var ekkert laust. Sem var ágætt því Chelsea tapaði eitt núll.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home